About Steingrímur Erlendsson

This author has not written his bio yet.
But we are proud to say that Steingrímur Erlendsson contributed 211 entries already.

Entries by Steingrímur Erlendsson

Þjónustubeiðnir í síma vegna bilunar hjá Microsoft

Vegna bilunar í tölvupóstþjónustu Microsoft geta orðið truflanir á móttöku tölvupósts hjá LYRU. Á meðan bilunin varir biðjum við viðskiptavini að hringja í síma 562 7778 vegna þjónustubeiðna. Hafir þú þegar sent þjónustubeiðni í tölvupósti og ekki fengið svar, vinsamlegast hafðu samband símleiðis. Við þökkum fyrir skilninginn.

Deila:

OHAUS stækkar vöruframboð sitt með Genie vörulínunni

Það er okkur ánægja að tilkynna spennandi viðbót við vöruframboð OHAUS fyrir rannsóknarstofur. OHAUS hefur keypt hina þekktu Genie vörulínu sem felur meðal annars í sér hinn sígilda Vortex-Genie. Með Genie vörulínunni bætist fjölbreyttur og vel þekktur búnaður til sýnameðhöndlunar og sýnavinnslu við úrval OHAUS. Fyrir rannsóknarstofur þýðir þetta enn breiðara úrval áreiðanlegs búnaðar frá […]

Deila:

Norræn ráðstefna lífeindafræðinga

Lyra var stoltur þáttakandi og  aðal styrktaraðili á norrænni ráðstefnu lífeindafræðinga sem haldin var hér á landi 5-7. maí.

Fulltrúar frá Roche Diagnostics, Sysmex og Stago tóku þátt í samstarfi við Lyru og sýndu ráðstefnugestum vöruframboð og veittu upplýsingar. Teymi Lyru tók vel á móti ráðstefnugestum á sýningarbás Lyru, svaraði fyrirspurnum og sýndi vöruúrval frá Werfen, Leica, OHAUS, DIESSE, Cellavision, EKF diagnostics og fleirum.

Lyra vill þakka félagi lífeindafræðinga fyrir frábæra og vel heppnaða ráðstefnu. Við viljum einnig þakka öllum þátttakendum og samstarfsaðilum fyrir framlag sitt og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við klínískar rannsóknarstofur hér á landi.

Deila:

Sysmex notendafundur

Sysmex notendafundur LYRU var haldinn 9. október 2024 á Hótel Reykjavík Grand. Þar voru ýmis erindi flutt, bæði frá Sysmex og notendum.

Sigrún Reykdal, yfirlæknir á Landspítala, hélt erindi um Lymphocytosis, góðkynja vs illkynja og Arna Óttarsdóttir tölvulífeindafræðingur á Landspítala hélt erindi um innleiðingu Extended IPU. Einnig voru erindi og kynningar frá Birgit Worning og Charlotte Amtoft.

Deginum lauk með kvöldverði þar sem Björgvin Sveinsson, tæknimaður hjá LYRU til 19 ára, var kvaddur við starfslok.

Deila:

Vinnustofur

Þann 8. október 2024 voru haldnar tvær vinnustofur. Sú fyrri var um Tosoh HLC-723 G11 HPLC greiningatækið sem greinir langtímasykur. Þar fór Charlotte Amtoft yfir þá þætti sem tæknin byggir á, aflestur á gröfum og hvernig eigi að bregaðast við villumeldingum.

Seinni vinnustofan fjallaði um Extended IPU hugbúnaðinn. Þar var farið yfir hvernig hann er uppbyggður, hvernig best er að nálgast upplýsingar og leiðbeint hvernig best megi nota hugbúnaðinn til vinnusparnaðar.

Deila:

Infinity vinnustofa

Infinity vinnustofa var haldin hjá LYRU, dagana 28. og 29. september, fyrir notendur Infinty tölvukerfisins sem rannsóknastofur á Íslandi nota. Tveir sérfræðingar frá Roche Diagnostics, þau Kathryn Carrick og Joeseph Barnett, komu og héldu utan um kennsluna. Þar var farið í uppsetningu á nýjum prófum, stillingum og rakningu á vandamálum. Hópurinn skemmti sér vel og lærði mikið.

Deila:

CUBE 30 TOUCH hjá Sameind

Sameind hefur tekið í notkun CUBE 30 TOUCH frá DIESSE. Um er að ræða háþróað lækningatæki sem er hannað til að auðvelda og flýta fyrir greiningu á sýnum á rannsóknarstofum. Tækið er notað til sjálfvirkrar mælingar á sökkhraða rauðra blóðkorna (ESR), sem er mikilvægur þáttur í greiningu bólgu- og sýkingarsjúkdóma.

CUBE 30 TOUCH er með snertiskjá sem gerir notkunina mjög notendavæna og einfalda. Tækið getur unnið með allt að 30 sýni í einu og veitir niðurstöður á stuttum tíma, sem eykur skilvirkni á rannsóknarstofunni Sameind.

Þessi tækni býður einnig upp á mikla nákvæmni og endurtekningarhæfni í mælingum, sem tryggir áreiðanleika í niðurstöðum. Að auki er tækið með tengimöguleika við rannsóknarstofukerfi (LIS), sem gerir gagnaflutning og skráningu á niðurstöðum enn auðveldari.

CUBE 30 TOUCH er því frábær kostur fyrir rannsóknarstofur sem leita að hraðvirkum, nákvæmum og notendavænum lausnum til að bæta þjónustu sína og auka afköst.

Deila:

Sysmex XN-550 á Höfn

Heilsugæslan á Höfn í Hornarfirði hefur tekið í notkun Sysmex XN-550 blóðkornateljara. Á meðfylgjandi mynd sem tekin var við afhendingu á tækinu, má sjá frá vinstri, Birgit Worning frá Sysmex, Sunnu Helgadóttur frá LYRU og Rögnu Pétursdóttur á Heilsugæslunni á Höfn í Hornarfirði.

Deila:

Mjólkursýrumælar

Mjólkursýrumælar

Lactate Scout Sport er einfaldur og áreiðanlegur mjólkursýrumælir sem hægt er að nota við hvers konar íþróttaæfingar. Með mjólkursýrumælinum er auðvelt og fljótlegt að mæla mjólkursýrustig á æfingu.

Niðurstöður fást á 10 sekúndum og aðeins þarf lítinn blóðdreitil á strimil til að framkvæma mælinguna í mjólkursýrumælinum. Innbyggt Bluetooth er og tækið tengjanlegt við púlsmæli og snjalltæki. Hægt er að geyma síðustu 500 mælingar.

Mjólkursýrumælingar eru mikilvægar í íþróttum. Þegar æft er stíft, framleiðir líkaminn mjólkursýru hraðar en hægt er að niðurbrjóta hana og fjarlægja úr blóðrásinni. Þetta leiðir til uppsöfnunar mjólkursýru í blóðrásinni.

Mjólkursýrumælir er því gagnlegur í þolþjálfun og æfingum fyrir hjarta- og æðakerfið, til að auka þolmörk án ofþjálfunar. Mjólkursýra er orkugjafi og er niðurbrotin af vöðvafrumum. Góð þjálfun stefnir að því að ná jafnvægi mjólkursýruframleiðslu, jafnvægi milli framleiðslu og niðurbrots mjólkursýru.

Auðveldar mjólkursýrumælingar í 3 skrefum:

Biosen serían frá EKF Diagnostics er leiðandi í mjólkursýru- og glúkósamælingum fyrir íþróttafólk. Þetta er fyrsta flokks lausn fyrir íþróttastofnanir og atvinnuíþróttateymi.

Nákvæm mæling er framkvæmd með einni prófun og búnaðurinn er auðveldur í notkun. Niðurstöður fást á 20-45 sekúndum og hægt er að framkvæma allt að 120 greiningar á klukkustund.

Biosen notar sérstaka flöguskynjaratækni til að skila mælingum hratt og af mikilli nákvæmni. Vegna góðs endingartíma skynjaraflögu, þá þarf kerfið lítið viðhald.

Auðveldar glúkósa- og mjólkursýrumælingar í 3 skrefum:

Deila: