Norræn ráðstefna lífeindafræðinga

Lyra var stoltur þáttakandi og  aðal styrktaraðili á norrænni ráðstefnu lífeindafræðinga sem haldin var hér á landi 5-7. maí.

Fulltrúar frá Roche Diagnostics, Sysmex og Stago tóku þátt í samstarfi við Lyru og sýndu ráðstefnugestum vöruframboð og veittu upplýsingar. Teymi Lyru tók vel á móti ráðstefnugestum á sýningarbás Lyru, svaraði fyrirspurnum og sýndi vöruúrval frá Werfen, Leica, OHAUS, DIESSE, Cellavision, EKF diagnostics og fleirum.

Lyra vill þakka félagi lífeindafræðinga fyrir frábæra og vel heppnaða ráðstefnu. Við viljum einnig þakka öllum þátttakendum og samstarfsaðilum fyrir framlag sitt og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við klínískar rannsóknarstofur hér á landi.

Deila: