FSA velur XN1000 blóðkornateljara
FSA hefur fest kaup á tveimur nýjum blóðkornateljurum XN1000 frá Sysmex. Þetta nýja tæki auðveldar til muna alla vinnu starfsfólks rannsóknastofu FSA og fjölgar þeim mælingum sem hafa verið í boði. Við óskum þeim til hamingju með nýja tækið. Á myndinni eru starfsfólk rannsóknastofunnar á FSA ásamt Birgit Worning kennara frá Sysmex.