Sysmex námskeið

Sysmex XN-1000 “Super User Training” námskeið var haldið hjá LYRU í Hádegismóum dagana 25. og 26 apríl. Níu notendur frá átta rannsóknastofum tóku þátt í námskeiðinu.

Að fyrri námskeiðsdegi loknum skellti hópurinn sér á Grand Brasserie veitingastaðinn á Grand Hótel Reykjavík.

Meðfylgjandi myndir eru af þátttakendum ásamt fyrirlesara og starfsfólki LYRU.

Hjá Lyru í Hádegismóum

Grand Brasserie á Grand Hótel Reykjavík

Deila:

Roche notendaráðstefna 2023

Notendaráðstefna LYRU OG Roche Diagnostics var haldin þann 23. febrúar 2023 á Hilton Reykjavík Nordica. Farið var yfir það nýjasta og markverðasta sem framundan er í tækniframförum, tækifærum og möguleikum fyrir rannsóknastofur á heilbrigðissviði. Einnig var farið yfir COVID tímann og margt, margt fleira.

Ráðstefnuna setti Guðbjartur Gunnarsson, framkvæmdastjóri LYRU og fyrirlesara voru Þórólfur Guðnason, fyrrum sóttvarnarlæknir, Ólöf Sigurðardóttir, yfirlæknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri ásamt teymi sérfræðinga frá Roche Diagnostics.

Guðmundur Jensson, yfirmaður tæknideildar LYRU og Sunna Helgadóttir, sérfræðingur hjá LYRU voru einnig með erindi á ráðstefnunni.

Ráðstefnuna sótti starfsfólk á íslenskum rannsóknastofum á heilbrigðissviði.

Deila:

Leica CM1950 á meinafræðideild LSH

Leica logo

Landspítali hefur tekið í notkun Leica frystiskurðtæki til lífsýnarannsókna á meinafræðideild. Tækið hentar til rannsókna á mismunandi tegundum sýna.

Meinafræðideild Landspítala er elsta rannsóknarstofa landsins og hóf starfsemi árið 1917. Í upphafi var stofnuð Rannsóknarstofa Háskóla Íslands sem síðar varð ein deilda Landspítala. Nafninu Rannsóknarstofa Háskólans í meinafræði var breytt árið 2004 í meinafræðideild Landspítala.

Hér fyrir neðan má sjá eldra tæki frá árinu 1980 sem nýja Leica tækið leysir af hólmi.

Deila:

Tosoh G11 hjá Sameind

800px-Tosoh_logo.svg

Tosoh HLC-723 G11 er sjálfvirk HPLC greiningatæki sem er sérstaklega hannað til að koma til móts við sívaxandi fjölda HbA1c beiðna og almennri þörf á að hámarka vinnuflæði á rannsóknastofum. Tosoh G11 greiningatækið er hraðvirkt, nákvæmt og notendavænt.

Sameind rannsóknastofa hefur tekið tvö Tosoh G11 tæki í notkun sem greina fleiri afbrigði hemoglóbíns til að fá betri mynd af sykurstjórnun sjúklings. Auk mælinga á hefðbundum HbA1c styrk, þá er hægt að mæla afbrigði sem veita leiðrétta HbA1c niðurstöðu ef ákveðin blóðrauða afbrigði eru til staðar o.fl.

Með því að nota HPLC tækni sýnir Tosoh G11 greiningatækið raunverulega stöðu blóðsýnis og blóðrauða, sem veitir læknum nákvæmari upplýsingar til að taka viðeigandi klínískar ákvarðanir fyrir sjúkling.

Deila:

Stago ST Genesia á LSH

stago-logo-stago

Stago ST Genesia greiningatæki hefur verið tekið í notkun á Rannsóknadeild Landspítala við Hringbraut. Tækið er sjálfvirkt og hannað til að styðja við klínískar rannsóknir á rannsóknastofum og staðla niðurstöður þrombínmyndunarprófa og gera þau sjálfvirk.

Með þessu eru prófanir gerðar aðgengilegri til notkunar í „in vitro“ greiningum (IVD). Þá er ST Genesia hannað til að bæta við þær upplýsingar sem venjulega eru veittar með venjubundnum prófunum (TP, TCA, o.s.frv.) eða sérhæfðum prófunum (Anti-Xa, ECA) og bjóða upp á bætt mat á segamyndun og blæðingum hjá sjúklingum.

Deila:

Sysmex námskeið

Sysmex XN-1000 “Super User Training” námskeið var haldið hjá LYRU í Hádegismóum dagana 25. og 26 október. Þrettán notendur frá tólf rannsóknastofum tóku þátt í námskeiðinu. Á myndunum má sjá þátttakendur ásamt fyrirlesara og starfsfólki LYRU.

Deila:

Cobas application þjálfun

Sérfræðingur frá Roche Diagnostics sá nýlega um application þjálfun á Cobas 6000 á rannsóknastofu Íslenskrar erfðagreiningar með starfsfólki ÍE og HSU á Selfossi.

Einnig fór fram þjálfun á Cobas C311 á rannsóknastofu Háskóla Íslands í Stapa með starfsfólki, en á þeirri rannsóknastofu fá nemendur í lífeindafræði að spreyta sig í ýmsum verkefnum og rannsóknum.

Meðfylgjandi myndir voru teknar af þessu tilefni.

Deila:

Sysmex XN-1000 á Húsavík

HSN Húsavík hefur tekið í notkun nýjan XN-1000 blóðkornateljara frá Sysmex. Greiningartækið er flaggskip Sysmex og sjá má nánari upplýsingar um tækið á vefsíðu framleiðanda hér.

 

Á myndinni frá vinstri eru: Þorbjörg, Sif, Magnea, Snædís og Aldís.

 

Deila:

Innleiðingar á cobas ® infinity

Innleiðing á cobas ® infinity rannsóknarstofulausninni frá Roche Diagnostics hefur verið framkvæmd hjá LSH og SAK. Einnig verður innleitt hjá HSU á næstunni.

Meiri samþætting greiningartækja á rannsóknarstofum við upplýsingatæknina er framfaraskref. Í raun má segja að um veldisvöxt í framförum sé að ræða og enn meiri árangur, frammistaða og stöðugleiki verður að veruleika.

Cobas ® infinity er mjög sveigjanleg stafræn vara sem hönnuð er til að hjálpa til við stjórnun á öllum verkefnum og verkferlum á mismunandi vinnusvæðum. Um er að ræða alhliða stjórnunartæki sem safnar öllum gögnum sem þörf er á og birtir upplýsingar skýrt á einn tölvuskjá.

Ákvörðunartaka verður skýrari og betri með breyttu verkflæði og samþættingu sem hægt er að sérsníða fyrir hvaða rannsóknarstofu sem er, þar sem allt flæði sýna í for- og eftirgreiningu sameinast í einni upplýsingatæknilausn.

Þessi tækni einfaldar lífið, léttir álagið og hámarkar nýtingu greiningartækja á rannsóknarstofum þar sem upplýsingar eru samþættar í rauntíma.

Fókusinn með cobas ® infinity er á árangur!

Deila:

STA Satellite Max til HSU, HSS og Sameindar

STA Satellite Max greiningartæki frá Stago hafa verið tekin í notkun hjá HSU á Selfossi, HSS í Keflavík og Sameind í Ármúla.

Blóðgreiningartækið er alsjálfvirkt og getur framkvæmt samtímis storknunar-, litninga- og ónæmismælingar með hámarks áreiðanleika.

Deila: